Láttu vísindin vinna með þínu fyrirtæki

Við hjálpum stjórnendum að byggja upp betri vinnustaði með atferlismiðaðri stjórnun, aðferðum sem byggja á rannsóknum, ekki tískubylgjum.

Dr. Sigríður Soffía Sigurjónsdóttir heldur fyrirlestur fyrir fullum sal

Það sem viðskiptavinir okkar segja

„Við hjá Bónus unnum með R+ þar sem beitt var OBM (Organizational Behavior Management) aðferðum til að bæta árangur. Verkefnið skilaði mjög jákvæðum og mælanlegum áhrifum á stuttum tíma. Það sem stóð upp úr var hversu vel lausnirnar nýttust í daglegum rekstri – jafnvel þegar álag jókst og við fórum inn í háannatíma. Samstarfið var faglegt, markvisst og skilaði raunverulegum árangri sem við gátum byggt áfram á.“

Björgvin Víkingsson, framkvæmdastjóri Bónus

“A well-designed training program that uses a variety of methods to ensure that learning is both educational and fun. R+ offers a wide range of courses and was able to accommodate our needs with flexibility.”

Pia Elisabeth Czorny, mannauðsstjóri Arctic Fish

Kannastu við þetta?

„Af hverju gera þau ekki bara eins og ég bið þau um?“

Fyrirmæli ein og sér breyta sjaldnast hegðun. Við sýnum hvernig umhverfið og afleiðingarnar móta það sem fólk gerir, og hvað stjórnandinn getur gert í því.

Um vinnustofuna →

„Sumir eru frábærir, aðrir ekki“

Bestu starfsmennirnir búa yfir þekkingu sem allir geta lært af. Við finnum hvað þeir gera öðruvísi og hjálpum til við að dreifa því besta á sem flesta.

Um vinnustofuna →

„Gildin eru til á blaði, en sjást ekki í verki“

Menning vinnustaðar birtist í því sem fólk gerir á hverjum degi. Við hjálpum til við að tengja gildin við skýra hegðun sem allir skilja og geta fylgt.

Um vinnustofuna →

„Reglurnar eru til, en þeim er ekki fylgt“

Öryggi snýst um hegðun. Með hegðunarmiðaðri öryggisstjórnun verður örugg hegðun að eðlilegum hluta af vinnudeginum.

Um öryggi á vinnustað →

Þjónusta

Allt okkar starf byggir á atferlismiðaðri stjórnun (Organizational Behavior Management), vísindagrein sem nýtir lögmál hegðunar til að bæta vinnustaði. Undir hana falla meðal annars frammistöðustjórnun, kerfisnálgun þar sem horft er á vinnustaðinn og menninguna sem heild, og öryggishegðun.

Ráðgjöf og íhlutanir

Hvort sem markmiðið er betri frammistaða, sterkari vinnustaðamenning eða aukið öryggi greinum við vandann, hönnum kerfi sem styður við æskilega hegðun og mælum árangurinn.

Nánar →

Vinnustofur

Sérsniðnar vinnustofur fyrir stjórnendur og starfsfólk, þar sem markmiðið er breytt hegðun á vinnustaðnum.

Nánar →

Fyrirlestrar

Léttir og hagnýtir fyrirlestrar fyrir stjórnendur og starfsfólk, til dæmis um endurgjöf, vinnustaðamenningu, kulnun og atferlishagfræði.

Nánar →

Einstaklingsráðgjöf

Stuðningur við stjórnendur sem vilja styrkja eigin stjórnunarhætti.

Nánar →

Hver erum við?

Dr. Sigríður Soffía Sigurjónsdóttir

Dr. Sigríður Soffía Sigurjónsdóttir

Doktor í atferlisgreiningu með áherslu á endurgjöf á vinnustað. Dósent í stjórnun við OsloMet og meðstofnandi MAGNEA.

Gestur Gunnarsson

Gestur Gunnarsson

Sérfræðingur í klínískri sálfræði með langa reynslu af samskiptum og lausn deilna. Framkvæmdastjóri 3 Fossa ehf.

Lesa meira um okkur →

Á ráðstefnum og í fjölmiðlum

Sigríður heldur erindið OBM in Iceland í Hörpu
Sigríður heldur erindið OBM in Iceland á alþjóðlegri ráðstefnu OBM Network og ICEABA í Hörpu 2025.
Gestur heldur erindi á Björgun 2026
Gestur á Björgun 2026, alþjóðlegri ráðstefnu Landsbjargar, þar sem hann fjallaði um öryggi ferðamanna frá sjónarhóli landeiganda og kynnti nýsköpunarverkefni R+ Innovation.
Sigríður og Baldur Hrafn kynna MAGNEA á sviði
Sigríður og Baldur Hrafn kynna MAGNEA á TechBBQ í Kaupmannahöfn. Sjá umfjöllun mbl.is og KLAK – Icelandic Startups.

R+ í dag

Síðustu misseri höfum við einbeitt okkur að nýsköpun. Í R+ Innovation þróum við lausn sem nýtir atferlisvísindi til að bæta umgengni og öryggi ferðamanna á náttúruperlum, með styrk frá RANNÍS. Sigríður er jafnframt dósent í stjórnun við OsloMet og einn stofnenda MAGNEA, sem þróar verð- og framleiðslustýringarkerfi fyrir sjávarafurðir. Gestur er framkvæmdastjóri 3 Fossa ehf.

Við tökum enn að okkur valin ráðgjafarverkefni á sviði atferlismiðaðrar stjórnunar. Ef þú vilt vita hvort við getum tekið að okkur verkefni fyrir þinn vinnustað, hafðu samband og bókaðu stutt kynningarspjall.