Hver erum við

Við viljum vinna með stjórnendum að því að hanna enn betri vinnustað.

Stofnendur R+ eru hjónin dr. Sigríður Soffía Sigurjónsdóttir og Gestur Gunnarsson. Þau kynntust atferlismiðaðri stjórnun fyrir tæpum tuttugu árum og heilluðust af því hversu skýr og árangursrík nálgunin er. Síðan þá hafa þau byggt upp þekkingu og reynslu sem nýtist til að hjálpa vinnustöðum að laða fram það besta í starfsfólki sínu.

Í dag sinna þau bæði fleiri verkefnum: Sigríður er framkvæmdastjóri nýsköpunarfyrirtækisins MAGNEA og Gestur er framkvæmdastjóri ferðaþjónustufyrirtækisins 3 fossar. Saman vinna þau að nýsköpun undir merkjum R+ Innovation. Þau taka þó enn að sér valin ráðgjafarverkefni hjá R+.

Dr. Sigríður Soffía Sigurjónsdóttir

Dr. Sigríður Soffía Sigurjónsdóttir

Doktor í atferlisgreiningu með áherslu á endurgjöf á vinnustað

  • Dósent í stjórnun við OsloMet
  • Framkvæmdastjóri og einn stofnenda MAGNEA, sprotafyrirtækis í sjávarútvegi
  • Doktorspróf frá OsloMet 2022, meistaranám frá OsloMet í Learning in complex systems og BA í sálfræði frá HÍ
  • Hefur kennt atferlismiðaða stjórnun á meistarastigi og stjórnendanám fyrir stjórnendur í heilbrigðis- og félagsgeiranum
  • Hefur haldið fjölda fyrirlestra á ráðstefnum í Noregi, Svíþjóð,Íslandi og Bandaríkjunum og unnið að því að koma á fót OBM Nordic
  • Áður verkefnastjóri hjá Capacent og Opna háskólanum í HR
Gestur Gunnarsson

Gestur Gunnarsson

Sérfræðingur í klínískri sálfræði

  • Framkvæmdastjóri 3 Fossa ehf., sem vinnur að uppbyggingu í ferðaþjónustu
  • Starfaði sem sálfræðingur í Noregi frá 2011 og varð sérfræðingur í klínískri sálfræði 2020
  • Mikil reynsla af samskiptum fólks og lausn erfiðra deilna, auk handleiðslu sálfræðinga
  • Var annar tveggja sérfræðinga í klínískri sálfræði sem byggðu upp fyrstu svæðismiðstöð Noregs fyrir börn og ungmenni með kynósamræmi, hjá Helse Sør-Øst
  • Sat í stýrihópi um endurskipulagningu barna- og unglingageðdeildar sjúkrahússins í Kongsvinger og kom að innleiðingu nýs meðferðarferlis í fíknimeðferð við Akershus-háskólasjúkrahúsið
  • Vann í fimm ár sem múrari áður en hann sneri sér að sálfræðinni

Kynnstu okkur nánar →