Þjónusta byggð á þekkingu og raunprófunum. Allt okkar starf byggir á atferlismiðaðri stjórnun, vísindagrein sem nýtir lögmál hegðunar til að bæta frammistöðu, vinnustaðamenningu og öryggi. Okkar sérstaða liggur í skilningi á þessum lögmálum og reynslu af því að breyta kerfum á vinnustöðum.
Hvernig getum við hjálpað?
Ráðgjöf og íhlutanir
Fyrir vinnustaði sem glíma við ákveðinn vanda, til dæmis breytingar sem ganga illa, hæga nýliðaþjálfun eða öryggisreglur sem ekki er fylgt, eða vilja byggja upp sterkari menningu. Við greinum vandann, hönnum lausn og mælum árangurinn.
Vinnustofur
Sérsniðnar vinnustofur fyrir stjórnendur og starfsfólk, til dæmis um endurgjöf, gildi og hegðun, samvinnu, nýliðaþjálfun og öryggi. Markmiðið er alltaf breytt hegðun í daglegu starfi, ekki bara góður dagur.
Fyrirlestrar
Léttir og hagnýtir fyrirlestrar fyrir stjórnendur og starfsfólk, til dæmis um endurgjöf, vinnustaðamenningu, kulnun og atferlishagfræði.
Einstaklingsráðgjöf
Stjórnendaráðgjöf og einstaklingssamtöl í fullum trúnaði, hvort sem áskorunin snýr að stjórnun, samskiptum eða persónulegri málum.
Hvernig vinnum við?
- Kynningarspjall. Við förum yfir stöðuna og markmiðin ykkar, án skuldbindingar.
- Greining. Við skoðum hvað gerist í raun í daglegu starfi og hvað viðheldur þeirri hegðun sem þarf að breyta.
- Lausn sniðin að ykkur. Hvort sem það er ráðgjöf, vinnustofa eða fyrirlestur, er efnið alltaf lagað að ykkar vinnustað.
- Mælingar og eftirfylgni. Við fylgjumst með árangrinum og tryggjum að breytingarnar festist í sessi.
Árangur tekur tíma
Eitt af því fyrsta sem við segjum viðskiptavinum okkar er að varanlegar breytingar gerast ekki á einum degi. Að senda starfsfólk á eitt námskeið og búast við kúvendingu er eins og að mæta einu sinni í ræktina og búast við að vera komin í toppform. Þess vegna leggjum við áherslu á raunhæf markmið, bæði til skemmri og lengri tíma, og á að það sem fólk lærir skili sér í daglegt starf.
