R+ Innovation

R+ Innovation er nýsköpunararmur R+. Þar nýtum við sömu atferlisvísindi og ráðgjöfin okkar byggir á til að takast á við ný og spennandi viðfangsefni. Síðustu misseri hefur stór hluti af tíma okkar farið í þetta starf.

Öryggi ferðamanna á náttúruperlum

Á vinsælum náttúruperlum hafa orðið alvarleg slys þegar ferðamenn fara inn á hættusvæði eða vanmeta aðstæður. Hefðbundnar lausnir, eins og skilti, girðingar og fræðsluefni, eru það sem atferlisfræðin kallar forvera: þær segja fólki hvað það á að gera. Rannsóknir á hegðun sýna hins vegar að það eru afleiðingarnar sem fylgja hegðun, og þá sérstaklega þær sem koma strax, sem ráða mestu um hvað fólk gerir í raun.

Við þróum því lausn sem hefur áhrif á hegðun ferðamanna í rauntíma, á staðnum, með aðferðum leikjavæðingar (gamification). Í stað þess að segja fólki einungis hvað sé hættulegt fær það tafarlausa endurgjöf sem styrkir örugga hegðun. Þetta er sama hugsun og við notum í öryggisstjórnun á vinnustöðum, færð út í náttúruna.

Ferðamaður stendur á klettabrún alveg við beljandi Hlauptungufoss í Brúará
Ferðamaður á brúninni við Hlauptungufoss í Brúará

Tæknin

Það dugar ekki að veita endurgjöf einhvern tíma. Hún hefur aðeins tilætluð áhrif ef hún berst strax og fylgir réttri hegðun, og illa útfærð endurgjöf getur haft öfug áhrif. Þess vegna þróum við tækni sem greinir hegðun nægilega nákvæmlega og hratt til að endurgjöfin berist á réttu augnabliki.

Atferlisgreiningin ræður hvar og hvenær endurgjöfin á að berast, og tæknin er útfærð svo hún berist einmitt þá. Lausnin er sniðin að hverjum stað og bætist við skilti, upplýsingar og gæslu. Við höfum ekki fundið sambærilega lausn, hvorki hér á landi né erlendis.

Staða verkefnisins

Verkefnið hlaut Fræ-styrk frá Tækniþróunarsjóði Rannís og er nú komið í lokaumferð Sprota. Við vinnum að þróuninni í samstarfi við rekstraraðila náttúruperlna og opinbera aðila á sviði ferðaöryggis.

Hver standa að verkefninu?

Að R+ Innovation standa stofnendur R+, dr. Sigríður Soffía Sigurjónsdóttir, doktor í atferlisgreiningu með áherslu á endurgjöf á vinnustað, og Gestur Gunnarsson, sérfræðingur í klínískri sálfræði. Lesa má meira um okkur hér.

Hefur þú áhuga á verkefninu, til dæmis sem rekstraraðili ferðamannastaðar eða fjárfestir? Hafðu samband á rplus@rplus.is.