Stjórnendaráðgjöf og einstaklingssamtöl fyrir þá sem vilja ná enn betri árangri með sínu fólki.
Það þarf ekki að kalla saman stóran hóp til að nýta þjónustu R+. Í einstaklingsráðgjöf vinnum við beint með þér, að þínum áskorunum, á þínum hraða. Stjórnendastarfið getur verið krefjandi og stundum einmanalegt, og það skiptir máli að hafa faglegan samherja sem horfir á stöðuna utan frá.
Hvenær hentar einstaklingsráðgjöf?
- Þú ert nýr í stjórnendastöðu og vilt byggja upp góða stjórnunarhætti frá byrjun
- Ákveðin hegðun í teyminu breytist ekki, þótt þú hafir margsagt hvernig eigi að gera hlutina
- Samskiptin í hópnum eru stirð eða ágreiningur hefur komið upp
- Þú þarft að innleiða breytingar og fá fólk með þér
- Þú vilt bæta eigin endurgjöf og verða markvissari í daglegri stjórnun
- Þig vantar ný sjónarhorn á flókna stöðu
Þegar áskoranirnar eru persónulegri
Stundum snúast áskoranirnar ekki eingöngu um stjórnun. Álag, streita, erfið samskipti, krefjandi aðstæður í einkalífi eða neysla geta haft áhrif á líðan og frammistöðu, hvort sem það er hjá stjórnandanum sjálfum eða einhverjum í teyminu. Þar sem Gestur er sérfræðingur í klínískri sálfræði getur hann einnig unnið með slík mál í samtölunum.
Hvernig fer ráðgjöfin fram?
- Kynningarspjall. Við förum yfir stöðuna og metum saman hvort og hvernig við getum hjálpað.
- Greining. Við skoðum hvað gerist í raun í daglegu starfi og hvað viðheldur þeirri hegðun sem þú vilt breyta, í stað þess að leita að sökudólgum.
- Áætlun. Saman setjum við skýr og raunhæf skref sem þú getur byrjað á strax.
- Eftirfylgni. Við hittumst reglulega, metum árangurinn og aðlögum áætlunina eftir þörfum.
Þegar áskoranirnar snúa að stjórnun byggir ráðgjöfin á aðferðum atferlismiðaðrar stjórnunar, sem hafa verið rannsakaðar í áratugi og skila mælanlegum árangri. Þegar málin eru persónulegri byggir vinnan á sálfræðilegri þekkingu og reynslu. Markmiðið er alltaf að þú hafir verkfæri sem nýtast þér áfram, ekki bara að leysa einstakt vandamál.
Hver veitir ráðgjöfina?
Gestur Gunnarsson, sérfræðingur í klínískri sálfræði, hefur langa og fjölbreytta klíníska reynslu, meðal annars af samskiptum, lausn erfiðra deilna og vinnu með fíknivanda, auk handleiðslu sálfræðinga. Dr. Sigríður Soffía Sigurjónsdóttir er doktor í atferlisgreiningu með áherslu á endurgjöf á vinnustað og hefur kennt stjórnendanám á háskólastigi. Lesa meira um okkur.
Fullur trúnaður
Að sjálfsögðu ríkir algjör þagnarskylda um allt sem fram kemur í samtölunum. Við deilum engum upplýsingum með vinnuveitanda þínum eða öðrum nema með þínu samþykki. Þannig skapast það traust sem þarf til að ræða raunverulegar áskoranir af hreinskilni.
Viltu vita hvort einstaklingsráðgjöf henti þér? Hafðu samband og bókaðu stutt kynningarspjall, án skuldbindingar.
